
Reglumyndband

Markmið leiksins
Flatir Fletir er liðaleikur þar sem tvö lið keppa um að fella fleti andstæðingsins með kasttæki. Leikurinn er spilaður á afmörkuðu svæði og sameinar nákvæmni, taktík og skemmtun. Markmiðið er að fella alla fleti andstæðingsins áður en hann fellur þína og á meðan að forðast refsi fletina. Fyrsta liðið sem nær að fella alla fleti andstæðingins (líka refsi fletina) vinnur leikinn.

Leikvöllurinn
Völlurinn er merktur með 4x4 metra kassa sem er innri kassinn (hægt að nota skrefabil til að merkja), notaðir eru 4 merkingakubbar í það. Síðan er kastsvæðið merkt með því að labba 2 metra á ská frá hornum innra kassans. Hinir 4 merkingakubbanir eru notaðir í það. Aðeins má kasta fyrir aftan ytri kassan og kasta má úr öllum áttum!

Að leggja niður fletina
Hvert lið fær 10 litríka fleti. Liðin skiptast síðan á að leggja fletina niður í innri kassan, lagður er niður einn flötur í einu og þarf að vera að minnsta kosti eitt fótabil á milli flata.

Köst
Þar sem leikurinn er gerður úr skemmtuninni að fleyta kerlingar þá eru einungis hliðarköst leifð. Þetta myndar áhugaverðan, uppákomumikinn og skemmtilegan leik.

Refsifletir
Hvort lið hefur tvo refsifleti. Ef andstæðingurinn hittir refsiflötinn hjá þínu liði missir liðið eina umferð. Ef lið hittir sinn eigin refsiflöt þarf það sjálft að sitja út eina umferð.
Create Your Own Website With Webador